top of page

Hvað er DataCentral?

DataCentral er öflug íslensk veflausn sem auðveldar dreifingu upplýsinga til starfsmanna, viðskiptavina eða almennings. Kerfið auðveldar stjórnun og innleiðingu á viðskiptagreind með samþættingu við Power BI.

Helstu kostir

DataCentral býður upp á miðlun á skýrslum og mælaborðum með myndrænum og einföldum hætti í gegnum öfluga aðgangsstýringu og notendavænt umsýsluviðmót

DataCentral einfaldar og styður við innleiðingu á Microsoft Power BI og nýtir til þess ýmsar Azure skýjaþjónustur.

Lausnin hjúpar leyfismál er tengjast Power BI ásamt því að draga úr takmörkunum og flækjustigi við innleiðingu á Power BI. Að auki verða framsetningarmöguleikar fleiri og viðmótið einfaldara og sveigjanlegra. Þeir notendur sem upplýsingum er miðlað til þurfa ekki að vera með Power BI leyfi ef þeir skoða eingöngu skýrslur.

  1. Hægt er að auðkenna notendur á margvíslegan máta, til dæmis með rafrænum skilríkjum. Ekki þarf að gefa ytri notanda gestaaðgang í rekstrarumhverfi (AD).
     

  2. Notendaumsýsla, öryggi stýrt niður á hlutverk notenda og auðkenning aðgengileg í gegnum vefviðmót, app eða API.
     

  3. Skoða, rýna og breyta Power BI efnistökum. 
     

  4. Samþætt framsetning á Power BI skýrslum, myndritum eða mælaborðum í gegnum vefviðmót, app eða önnur forrit. 
     

  5. Engin þörf á "appi" til að skoða skýrslur á ferðinni

Einfaldleiki

Notendaviðmót er einfalt, skýrt, leiðandi og sveigjanlegt.

Auðkenning

Sveigjanleg auðkenning, hægt að nota Entra ID, Social logins, Open Connect, Mobile ID o.fl. kosti. Hægt er að nota fleiri en einn kost hverju sinni. 

Aðgangsstýring

Hægt að aðgangsstýra niður á hlutverk, skýrslur eða afmörkuð gögn í skýrslum (RLS). Virkarbæði fyrir starfsmenn og ytri aðila, þó þeir síðarnefndu séu ekki skráðir sem ytri aðilar í umhverfi viðskiptavinar (AD).

Leyfismál

DataCentral er SAAS lausn sem getur sparað kostnað við hugbúnaðarleyfi.

Innsláttur gagna og sjálfvirkni

Einföld leið til að auka gagnvirkni í skýrslum án sérstakrar forritunar. 

Notkunar-möguleikar

Opin mælaborð og skýrslur
  • Opið bókhald

  • Mælaborð fyrir almenning
     

Miðlun á upplýsingum milli innri og ytri hagaðila
  • Staða verkefna

  • Lykilmælikvarðar settir fram fyrir sameiginleg verkefni

  • Viðmót fyrir viðskiptavini

  • Mínar pantanir

  • Viðskiptasaga
     

Upplýsingagjöf innan fyrirtækis / stofnunar (t.d á innraneti) ​
  • Skýrslur og yfirsýn fyrir stjórnendur

  • Rekstrarrýni

  • Lykilmælikvarðar fyrir framlínustarfsmenn 

  • Þjónustumælikvarðar
     

Stafræn framsetning gagna
  • Niðurstöður kannana 

  • Jafnlaunagreining
     

Einfaldari rekstur
  • Aðgangsstýringar án flókinnar umsýslu

  • Miðlægar skýrslur til miðlunar gagna til ólíkra aðila

Info@intenta.is

Hlíðasmári 12 

2. hæð

Kt.: 650520-1220

Fylgdu okkur

  • LinkedIn
  • Facebook

© 2026 INTENTA

bottom of page