Hagnýting gervigreindar

Gervigreind sem skilar virði í rekstri

Við aðstoðum stjórnendur við að greina hvar gervigreind skapar raunverulegt virði, setja skýran ramma um notkunina og koma fyrstu lausnunum í gagnið. Skref fyrir skref, með rekstur, gögn og ferla að leiðarljósi.

Sjá vegferðina

Þrjú stig virðis

1 Efling
2 Endurhönnun
3 Nýsköpun
Fljótlegur ávinningur Meira virði og umfang

Nálgunin

Virðið fyrst, tæknin svo

Flest fyrirtæki hafa þegar prófað gervigreind en færri vita hverju hún skilar. Við byrjum á virðinu: hvar sparast tími, hvar batna ákvarðanir og hvar opnast ný tækifæri. Lausnir eru svo valdar út frá því, ekki öfugt.

Hvar liggur virðið?

Við greinum ferla, gögn og dagleg verkefni starfsfólks og finnum þau tækifæri sem skila mestum ávinningi miðað við fyrirhöfn.

Hvað þarf til?

Gögn, kerfi, færni og skýran ramma. Við metum stöðuna af hreinskilni svo ákvarðanir byggi á raunhæfum forsendum frekar en óskhyggju.

Hvernig mælum við árangur?

Hvert verkefni fær skilgreint markmið og mælikvarða svo stjórnendur sjái ávinninginn svart á hvítu.

Þrjú stig

Þrjú stig hagnýtingar

Gervigreind skilar virði á ólíkan hátt eftir því hversu djúpt hún nær inn í starfsemina. Við hjálpum ykkur að velja rétta stigið fyrir hvert verkefni og byggja upp getu jafnt og þétt.

1

Efling

Starfsfólk nýtir gervigreind í daglegum störfum og vinnur hraðar og betur. Skýr rammi, einföld notkun og rétt val á lausnum, til dæmis Microsoft 365 Copilot, Claude, Gemini eða önnur tól.

Fljótlegur ávinningur, lítil áhætta

2

Endurhönnun

Ferlar eru endurhannaðir með gervigreind, gögnum og samtengdum kerfum. Erindrekar (AI-agents) taka að sér afmörkuð verk innan skýrra marka.

Meiri ávinningur, krefst góðra gagna

3

Nýsköpun

Ný þjónusta, nýjar vörur eða breytt viðskiptalíkan þar sem gervigreind er hluti af kjarnanum.

Mesta virðið, kallar á skýra stefnu

Nálgunin byggir á aðferðafræði Gartner um hagnýtingu gervigreindar.

Vegferðin

Frá fyrstu spurningu til lausnar í notkun

Fyrsta skrefið er afmarkað stöðumat. Það þarf ekki stóra ákvörðun til að byrja, en það skiptir máli að byrja rétt.

  1. Skref 1

    Stöðumat

    Hvar stöndum við?

    Þroskamat á gögnum, kerfum, hæfni og notkun í dag, ásamt fyrstu tækifærum.

  2. Skref 2

    Stefna

    Hvert viljum við fara?

    Markmið og afmörkun, þar sem gervigreind styður við stefnu fyrirtækisins í heild.

  3. Skref 3

    Vegvísir

    Í hvaða röð?

    Forgangsröðuð verkefni með mati á ávinningi, kostnaði og áhættu.

  4. Skref 4

    Innleiðing

    Hvernig náum við árangri?

    Fyrstu lausnir í notkun, þjálfun starfsfólks og breytingastjórnun, með mælanlegum árangri.

Rammi um notkun gervigreindar Leikreglur, ábyrgð og öryggi fylgja öllum skrefum vegferðarinnar.

Traustur grunnur

Gervigreind er aldrei betri en grunnurinn

Hún hvílir á gögnum, ferlum, vinnulagi, fólki og stjórnun. Þar liggur áratuga reynsla Intenta, og þess vegna tengjum við gervigreindarvinnuna við aðra ráðgjöf okkar.

Gögn og viðskiptagreind

Hrein og aðgengileg gögn eru forsenda gervigreindar, hvar svo sem þau eru. Við metum stöðuna óháð tækni.

Ferlar og stjórnkerfi

Skýrir ferlar, áhættumat og ábyrgð gera notkunina örugga og í samræmi við kröfur.

Stefna og breytingar

Ávinningurinn næst aðeins þegar fólkið fylgir með. Þjálfun og breytingastjórnun eru hluti af verkinu.

Ekki er ráð nema í tíma sé tekið

Hvar getur gervigreind skapað virði hjá ykkur?

Byrjum á stuttu samtali. Við förum yfir stöðuna með ykkur og bendum á þau tækifæri sem vert er að skoða fyrst.