Fjársýsla ríkisins
Áætlanakerfi ríkisins (AKRA)
Við leiddum hönnun og innleiðingu áætlanakerfis í IBM Planning Analytics, sem öll ráðuneyti og ríkisstofnanir nýta nú við áætlanagerð um tekjur, laun, rekstur og fjárfestingar.
Verkefni
Viðskiptavinir okkar eru íslensk fyrirtæki og opinberir aðilar. Hér eru dæmi um verkefni, flokkuð eftir þáttum ráðgjafar.
Fjársýsla ríkisins
Við leiddum hönnun og innleiðingu áætlanakerfis í IBM Planning Analytics, sem öll ráðuneyti og ríkisstofnanir nýta nú við áætlanagerð um tekjur, laun, rekstur og fjárfestingar.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Þróun á aðferðafræði við mat á upplýsingatækni og stafrænni stefnu ríkisstofnana ásamt úttekt á stöðu stafrænnar umbreytingar hjá hinu opinbera.
Hafrannsóknastofnun
Spár um vinnustundir, nýtingu innviða, tekjur og verkefnakostnað í Planning Analytics. Rauntímastaða verkefna er aðgengileg í Power BI og ReportWORQ.
Reykjavíkurborg
Stöðumat á stafrænni umbreytingu borgarinnar sem lagði grunn að nýrri stafrænni stefnu.
HS Orka
Uppbygging heildstæðs stjórnkerfis, rekstrarferla, hæfni starfsfólks og upplýsingatæknistuðnings til að tryggja markvissan og skilvirkan rekstur.
Reiknistofa lífeyrissjóða
Endurskipulagning innri starfsemi, kortlagning innviða, yfirtaka hugbúnaðarkerfis og markviss breytingastjórnun á öllum stigum innleiðingar.
Landspítali
Lausnir í Planning Analytics sem styðja tíð og ítarleg uppgjör, áætlanagerð og fráviksgreiningu.
Reykjavíkurborg
Ráðgjöf um breytingastjórnun og stefnu við innleiðingu stafrænnar fræðslu fyrir starfsfólk.
Icelandair Group
Reglulegar og ítarlegar áætlanir um tekjur, rekstrarkostnað og arðsemi í Planning Analytics, ásamt skýrslugerð í Cognos Analytics.
Össur
Stuðningur við samstæðuuppgjör um árabil, með lausnum IBM og Insight Software vegna reglubundinna skila til eftirlitsaðila.
Háskóli Íslands
Uppsetning og þróun á rekstraráætlunum og fjárhagsgreiningum með notkun Planning Analytics og Cognos Analytics.
Veritas
Mótun og innleiðing þjónustustefnu með áherslu á stafræna framþróun og þjónustumenningu.
Reykjavíkurborg
Verkefnastjórn við innleiðingu kerfis sem eflir samvinnu starfsfólks, lágmarkar pappírsnotkun og bætir þjónustu við íbúa.
Segðu okkur frá stöðunni og við finnum réttu leiðina með þér.
Sendu okkur línu með stuttri lýsingu á verkefninu eða fyrirspurn og við heyrum í þér fljótlega.
Takk fyrir!
Skilaboðin eru komin til okkar og við höfum samband fljótlega.
Ekki tókst að senda skilaboðin. Sendu þau frekar í tölvupósti.
Einnig má senda póst beint á info@intenta.is.