Teymið

Ráðgjafar Intenta

Intenta er skipað reyndu teymi ráðgjafa með áratuga reynslu af stefnumótun, fjármálum, gögnum og upplýsingatækni. Auk þess vinnum við náið með öðrum reyndum ráðgjöfum sem koma að verkefnum eftir þörfum.

Eigendur Intenta ehf. eru Arngrímur Þórhallsson, Hafliði Sævarsson, Hallbjörn Ægir Björnsson, Indriði Freyr Indriðason, Ingvi Þór Elliðason og Sigurður Hjalti Kristjánsson, og starfa þeir allir sem ráðgjafar hjá félaginu.

Arngrímur Þórhallsson

Arngrímur Þórhallsson

Eigandi og ráðgjafi

Viðskiptagreind og gagnamál, með áherslu á gagnalíkön, Power BI og Planning Analytics. Starfaði áður við tekjustýringu, upplýsingatækni og verkefnastjórnun hjá Icelandair Hotels. B.Sc. í iðnaðarverkfræði og sálfræði frá Háskóla Íslands.

  • Viðskiptagreind og gögn
  • Planning Analytics
Fjóla María Ágústsdóttir

Fjóla María Ágústsdóttir

Ráðgjafi

Stefnumótun, breytingastjórnun og ferlaþróun, meðal annars við sameiningu ráðuneyta, mótun Stafræns Íslands og stafræna umbreytingu sveitarfélaga. Var stjórnendaráðgjafi hjá Capacent. B.Sc., MBA og IPMA C-vottaður verkefnastjóri.

  • Stefnumótun og breytingar
  • Hagnýting gervigreindar
Hafliði Sævarsson

Hafliði Sævarsson

Eigandi og ráðgjafi

Hönnun og innleiðing viðskiptagreindarlausna, gagnavöruhúsa og Planning Analytics. Hefur leitt innleiðingar fyrir Fjársýslu ríkisins, Háskóla Íslands, Icelandair og fleiri, áður sem meðeigandi hjá KPMG og Capacent. Kerfisfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.

  • Fjármálastjórn og rekstur
  • Planning Analytics
Hallbjörn Ægir Björnsson

Hallbjörn Ægir Björnsson

Eigandi og ráðgjafi

Áætlanagerð, uppgjör, ferlagreining og virðisstjórnun. Hefur stýrt innleiðingum IBM-lausna fyrir Actavis, Össur, Marel, Landsbankann og fleiri, áður hjá Capacent og KPMG. B.Sc. í iðnrekstrar- og vörustjórnunarfræði.

  • Fjármálastjórn og rekstur
  • Planning Analytics
Hólmfríður Anna Martel Ólafsdóttir

Hólmfríður Anna Martel Ólafsdóttir

Ráðgjafi

Tölfræðileg greining á gögnum fyrirtækja og stofnana. Starfaði í rúman áratug hjá markaðsrannsókna- og ráðgjafarfyrirtækjum í London og síðar hjá Capacent. BA í sálfræði, M.Sc. frá LSE og IPMA D-vottun.

  • Viðskiptagreind og gögn
Indriði Freyr Indriðason

Indriði Freyr Indriðason

Eigandi og ráðgjafi

Rekstur, stjórnun og stafræn umskipti, með víðtæka þekkingu á upplýsingatækni. Reynsla úr fjármálageiranum hjá Korta, Kviku banka, Seðlabanka Íslands og Íslandsbanka. B.Sc. og M.Sc. í viðskiptafræði og IPMA D-vottaður verkefnastjóri.

  • Stefnumótun og breytingar
  • Hagnýting gervigreindar
Ingvi Þór Elliðason

Ingvi Þór Elliðason

Framkvæmdastjóri, eigandi og ráðgjafi

Ráðgjöf í rekstri, stjórnun og fjármálum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins, með áherslu á Planning Analytics. Var meðeigandi hjá KPMG og forstjóri Capacent. Iðnaðartæknifræðingur frá Háskólanum í Reykjavík.

  • Fjármálastjórn og rekstur
  • Planning Analytics
Júlía Pálmadóttir Sighvats

Júlía Pálmadóttir Sighvats

Ráðgjafi

Verkefnastjórnun og lausnahönnun í upplýsingatækni, gagnastefna og útleiðing eldri kerfa. Stjórnunarstörf hjá Advania, Sensa og BYKO, og stýrði áður upplýsingatækni hjá LÍN. B.Sc. í tölvunarfræði, MPM og nám í stjórnendamarkþjálfun.

  • Stefnumótun og breytingar
  • Stafræn heildarmynd
Magnús Guðmundsson

Magnús Guðmundsson

Ráðgjafi

Gagnamál og viðskiptagreind: gagnalíkön, gagnavöruhús og greiningarumhverfi, einkum fyrir fjármálafyrirtæki. Vottaður gagnaverkfræðingur hjá Microsoft, AWS og Databricks. B.Sc. í tölvunarfræði, M.Sc. í fjármálum og MicroMasters frá MITx.

  • Viðskiptagreind og gögn
  • Hagnýting gervigreindar
Sigurður Hjalti Kristjánsson

Sigurður Hjalti Kristjánsson

Eigandi og ráðgjafi

Stefnumótun, breytingar og stafræn þróun þar sem margir hagaðilar koma að. Hefur meðal annars stýrt tímabundið einni stærstu upplýsingatæknideild landsins. Véla- og iðnaðarverkfræðingur, MBA og IPMA B-vottaður verkefnastjóri.

  • Stefnumótun og breytingar
  • Stafræn heildarmynd
Tómas Einarsson

Tómas Einarsson

Ráðgjafi

Upplýsingatækni, stafræn umbreyting og innleiðing gervigreindar, með áherslu á að tengja saman rekstur og tækni. Reynsla af SAP og öðrum ERP-lausnum hjá Íslandsbanka, BASF og Kardex Remstar. Nám í tölvunarfræði við Tækniháskólann í Hamborg.

  • Stefnumótun og breytingar
  • Hagnýting gervigreindar

Viltu ræða við ráðgjafa?

Sendu okkur línu og við tengjum þig við þann ráðgjafa sem hentar verkefninu best.