Sérhæfð lausn, IBM Planning Analytics

Reiknilíkön, áætlanir og uppgjör

Við innleiðum Planning Analytics frá IBM og smíðum líkön fyrir áætlanagerð, uppgjör og ákvarðanir hjá fyrirtækjum, ríki og sveitarfélögum.

Intenta er IBM Partner Plus (Silver)

Mælaborð í Planning Analytics með útkomuspá, áætlun og samanburði eftir mánuðum
Dæmi úr Planning Analytics

Notkun

Eitt líkan fyrir áætlanir, spár og uppgjör

Planning Analytics heldur utan um gögn, forsendur og útreikninga á einum stað, svo margir geti unnið í sama líkaninu með öruggum hætti.

Rekstrar- og sjóðstreymisáætlanir

Tekjur, kostnaður og greiðsluflæði áætluð niður á deildir, verkefni og mánuði.

Rúllandi spár og fráviksgreining

Spár uppfærðar reglulega og frávik frá áætlun greind jafnóðum.

Tölfræðileg spálíkön og bestun

Söguleg gögn nýtt til að spá fyrir um þróun og finna bestu lausn, til dæmis í vaktaskipulagi.

Uppgjör og arðsemisgreining

Mánaðaruppgjör og arðsemi niður á vörur, viðskiptavini eða rekstrareiningar.

Starfsmanna- og launaáætlanir

Stöðugildi, launaþróun og launatengd gjöld áætluð fyrir hvern starfsmann eða hóp.

Söluáætlanir og veltufé

Sala áætluð eftir vörum og mörkuðum og áhrif á birgðir, kröfur og skuldir metin.

Gjaldskrár- og kostnaðarskiptilíkön

Kostnaði skipt á þjónustuþætti og gjaldskrár reiknaðar út frá raunkostnaði.

Fjárfestingaáætlanir

Fjárfestingar skipulagðar yfir tíma, með afskriftum og áhrifum á rekstur og efnahag.

Excel eða Planning Analytics?

Þegar Excel-líkanið er orðið of stórt

Excel hentar mörgum verkefnum vel, en stór líkön verða fljótt erfið í umsjón. Notendur halda áfram að vinna í Excel-viðmóti en gögnin og reglurnar búa í traustu kerfi.

Margir notendur

Margir vinna samtímis í sama líkaninu án þess að þurfa að samkeyra mörg afrit og skjöl.

Aðgangsstýring

Hver notandi sér og breytir aðeins því sem honum er ætlað.

Stórar víddir

Víddir eins og vörur, deildir og verkefni geta verið afar umfangsmiklar og tekið stöðugum breytingum.

Flókin viðfangsefni

Flóknir útreikningar verða auðveldari í umsjón og fullkomlega rekjanlegir.

Myndband

PAX, Planning Analytics for Excel

Hallbjörn Ægir Björnsson sýnir Excel-viðmótið

Sjáðu hvernig unnið er með gögn og áætlanir í Planning Analytics beint úr Excel, í viðmóti sem notendur þekkja nú þegar.

Þjónusta Intenta

Frá hugmynd að líkani í notkun

Innleiðing

Uppsetning lausnarinnar, tenging við gagnalindir og þjálfun notenda, til að lausnin komist örugglega í notkun.

Líkanasmíð

Hönnun og smíði reiknilíkana fyrir áætlanir, uppgjör og ákvarðanir, sniðin að rekstri og þörfum hvers viðskiptavinar.

Ráðgjöf

Greining og endurskoðun á ferlum áætlanagerðar, uppgjörs og skýrsluskila í nánu samstarfi við stjórnendur.

Skýrslur og miðlun

Skýrslur og mælaborð úr líkaninu með ReportWORQ og Power BI, sem veita stjórnendum og starfsfólki skýra yfirsýn.

Reynslan

Planning Analytics í notkun

Fjársýsla ríkisins

Áætlanakerfi fyrir allar stofnanir ríkisins: tekjur, laun, rekstur og fjárfestingar, samræmt við fjárlög.

Landspítali

Tíð og ítarleg uppgjör, áætlanagerð og fráviksgreining sem styðja stjórnendur í rekstri spítalans.

Icelandair Group

Reglubundin áætlanagerð um tekjur, rekstrarkostnað og arðsemi, ásamt skýrslugerð fyrir samstæðuna.

Háskóli Íslands

Rekstraráætlanir og greiningar fyrir háskólann í Planning Analytics, með skýrslugerð í Cognos Analytics.

Hafrannsóknastofnun

Verkáætlanir, vinnustundir, tekjur og verkefnakostnaður með rúllandi spám og fráviksgreiningu.

Össur

Samstæðuuppgjör og skýrslugerð til margra ára, með lausnum IBM og insightsoftware fyrir regluleg skil.

Sjá öll verkefni Intenta

Myndbönd

Sjáðu Planning Analytics í notkun

Ráðgjafar Intenta sýna lausnina og raunveruleg dæmi.

Planning Analytics og Intenta

Kynningarmyndband, um 2 mínútur

Stutt kynning á Planning Analytics og því hvernig Intenta vinnur með viðskiptavinum að áætlunum, uppgjörum og líkönum.

Bestun á vaktaskipulagi

Ingvi Þór Elliðason fjallar um bestun með Planning Analytics

Dæmi um hvernig reiknilíkan í Planning Analytics nýtist til að besta vaktaskipulag og mönnun.

Er Excel-líkanið orðið of stórt?

Við förum yfir núverandi lausn með ykkur og sýnum hvernig Planning Analytics gæti einfaldað áætlanagerð og uppgjör.