Verkefni

Verkefni fyrir viðskiptavini

Viðskiptavinir okkar eru íslensk fyrirtæki og opinberir aðilar. Hér eru dæmi um verkefni, flokkuð eftir þáttum ráðgjafar.

Fjársýsla ríkisins

Áætlanakerfi ríkisins (AKRA)

Við leiddum hönnun og innleiðingu áætlanakerfis í IBM Planning Analytics, sem öll ráðuneyti og ríkisstofnanir nýta nú við áætlanagerð um tekjur, laun, rekstur og fjárfestingar.

  • Fjármálastjórn og rekstur

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Stafræn stefnumótun stofnana

Þróun á aðferðafræði við mat á upplýsingatækni og stafrænni stefnu ríkisstofnana ásamt úttekt á stöðu stafrænnar umbreytingar hjá hinu opinbera.

  • Stafræn heildarmynd

Hafrannsóknastofnun

Verkáætlanir og skýrslugerð

Spár um vinnustundir, nýtingu innviða, tekjur og verkefnakostnað í Planning Analytics. Rauntímastaða verkefna er aðgengileg í Power BI og ReportWORQ.

  • Viðskiptagreind og gögn
  • Fjármálastjórn og rekstur

Reykjavíkurborg

Stafræn stefna

Stöðumat á stafrænni umbreytingu borgarinnar sem lagði grunn að nýrri stafrænni stefnu.

  • Stafræn heildarmynd

HS Orka

Ferladrifið fyrirtæki

Uppbygging heildstæðs stjórnkerfis, rekstrarferla, hæfni starfsfólks og upplýsingatæknistuðnings til að tryggja markvissan og skilvirkan rekstur.

  • Stjórnkerfi og ferli

Reiknistofa lífeyrissjóða

Umbreyting og nýtt hlutverk

Endurskipulagning innri starfsemi, kortlagning innviða, yfirtaka hugbúnaðarkerfis og markviss breytingastjórnun á öllum stigum innleiðingar.

  • Stefnumótun og breytingar

Landspítali

Uppgjör og rekstraráætlanir

Lausnir í Planning Analytics sem styðja tíð og ítarleg uppgjör, áætlanagerð og fráviksgreiningu.

  • Fjármálastjórn og rekstur

Reykjavíkurborg

Stafrænt fræðslukerfi

Ráðgjöf um breytingastjórnun og stefnu við innleiðingu stafrænnar fræðslu fyrir starfsfólk.

  • Stefnumótun og breytingar

Icelandair Group

Áætlanir og viðskiptagreind

Reglulegar og ítarlegar áætlanir um tekjur, rekstrarkostnað og arðsemi í Planning Analytics, ásamt skýrslugerð í Cognos Analytics.

  • Fjármálastjórn og rekstur
  • Viðskiptagreind og gögn

Össur

Samstæðuuppgjör og skýrslugerð

Stuðningur við samstæðuuppgjör um árabil, með lausnum IBM og Insight Software vegna reglubundinna skila til eftirlitsaðila.

  • Fjármálastjórn og rekstur

Háskóli Íslands

Rekstraráætlanir og greining

Uppsetning og þróun á rekstraráætlunum og fjárhagsgreiningum með notkun Planning Analytics og Cognos Analytics.

  • Viðskiptagreind og gögn
  • Fjármálastjórn og rekstur

Veritas

Þjónustustefna

Mótun og innleiðing þjónustustefnu með áherslu á stafræna framþróun og þjónustumenningu.

  • Stefnumótun og breytingar

Reykjavíkurborg

Nýtt upplýsingastjórnunarkerfi

Verkefnastjórn við innleiðingu kerfis sem eflir samvinnu starfsfólks, lágmarkar pappírsnotkun og bætir þjónustu við íbúa.

  • Stefnumótun og breytingar

Er verkefni í farvatninu?

Segðu okkur frá stöðunni og við finnum réttu leiðina með þér.